Í beinni frá Úganda
12.07.2006 08:33:46 / vigga

Komin heim !!!

Erum komin á klakann. Ferðin gekk mjög vel,  erum samt frekar ferðalúinn og eftir okkur, tala nú ekki um kuldann. En það góða við veðráttuna er að það tala allir um að það sé kalt ekki bara við. Ætlum að vera í bænum fram á laugardag, keyra í dalina og hitta fólkið í stóru útilegunni og halda svo áfram á sunnudaginn vestur. Hlakka mikið til að komast á hótel mömmu. Er líka komin með nýtt netfang sem er viggaerl@gmail.com .

Þar sem maður er komin heim þá ætla ég að hætta að skrifa hérna inn, þetta var nú aðalega gert fyrir mömmu og Maju á meðan við vorum svona langt frá þeim, en við erum komin til að vera svo að ég get ekki séð neina ástæðu fyrir því að halda þessu áfram. Takk samt fyrir að fylgjast með okkur og vonandi sjáumst við sem fyrst..

Kveðja Vigga


» 2 hafa sagt sína skoðun

05.07.2006 09:55:20 / vigga

5 dagar.....

Hún Júlía mín er 12 ára í dag. Fyrsti afmælisdagurinn sem við syngjum ekki fyrir hana með kakó og ristað brauð. En við Bjarni lágum aftur á móti upp í rúmi í morgun með Herði og við sungum afmælissönginn. Innilega til hamingju með daginn ástin mín og ég vona að þú hafir góðan dag hjá Alla frænda,Kristínu, Hrefnu og Jóhönnu. Færð risa pakka á mánudagskvöldið kossa og knús. Svo verðum við bara að spóla til baka þegar við komum heim og framkvæma afmælishefðina. Annars bara allt fínt. Höddi klárar skólann á föstudaginn og svo ætlum við að halda smá kveðjuhóf á laugardaginn. Kveðja heim, Vigga

» 3 hafa sagt sína skoðun

03.07.2006 16:55:17 / vigga

7 dagar...

Jæja búin að pakka öllu og gámurinn fór í dag. Búið að vera rosalega strembið að koma þessu öllu saman og ekki munaði miklu að við gátum ekki lokað gámnum. En það tókst, og hann er sem sagt lagður af stað. Við erum núna komin til Kristjáns og Lesley og verðum þar þangað til við leggjum af stað á mánudagsmorgun. Hlakka mikið til. Kveðja Vigga

» 3 hafa sagt sína skoðun

27.06.2006 08:00:55 / vigga

13 dagar....

Áttum rosalega fína helgi í Jinja þrátt fyrir kvef og magavesen í Bjarna. Spiluðum gólf, fórum í sund og skoðuðum upptök Níl. Ég er komin með þessa kvefpest líka og er hálf ómöguleg. Mér finnst tíminn allveg ótrúlega fljótur að líða, eftir 13 daga verðum við komin á klakann.... Kveðja heim. Vigga

» 2 hafa sagt sína skoðun

23.06.2006 09:58:18 / vigga

17 dagar....

Jæja þetta styttist skemmtilega hratt. Erum að fara með Lilju til Jinga og ætlum að vera þar um helgina og leika okkur og kannski reyna að ná sér í smá lit. Ég er jafn hvít í dag og þegar ég kom hingað út fyrir 14 mánuðum. Verð að geta sýnt að ég hafi búið hér allan þennan tíma þ.e í afríku í hitanaum og sólinni. Það er nú samt það leiðinlegasta sem ég geri, að hanga og gera ekki neitt bara til að fá lit sem hverfur svo á nokkrum dögum. En ég ætla að reyna. Gámurinn kemur 3 júlí og við verðum svo heima hjá Kristjáni í viku. 17 dagar, get ekki beðið.... Vigga

» 2 hafa sagt sína skoðun

12.06.2006 09:55:07 / vigga

28 dagar....

Áttum fína sjómannadagshelgi, gerðum nákvæmlega ekki neitt. Ég var að dunda mér við að pakka alla helgina. Lilja kom svo til okkar í gær og við grilluðum og skáluðum fyrir deginum. Heyrðum í stelpunum og þeim fannst verið rosalega gaman og miikið um að vera á Flateyri. Sjómannadagur númer 2 sem að við missum af. Júlía fór í sjóinn í flekahlaupinu og var mjög kát með það. Við komum þann 10 júlí um kvöldið og reiknum með að stoppa 4-5 í Reykjavík áður en við komum vestur. Það fer allveg eftir því hvernig okkur gengur að skipuleggja heimsóknirnar áður en við leggjum í hann heim. Svo þarf ég nú að eyða einhverjum tíma í að fata okkur aftur upp. Við eigum í dag svo til eingöngu sumarföt og sandala. Kv, Vigga

» 4 hafa sagt sína skoðun

07.06.2006 06:56:15 / vigga

33 dagar....

Jæja get loksins gefið mér smá tíma í að blogga. En já við erum sem sagt að koma heim þann 10 júlí. Er byrjuð að pakka öllu niður aftur, en mér sýnist það nú ekki verða jafn erfitt og þegar við fluttum hingað út. Bæði vegna þess að við erum búin að losa okkur við svo mikið af óþarfa dóti og svo erum við líka með hjálp frá vinnufólkinu okkar. Er mikið að hugsa um að stinga John og Jamillu með í gáminn. En Júlía við skiljum hundana eftir og erum á fullu að finna þeim gott heimili. Planið er að vera í nokkra daga í Reykjavík áður en við förum vestur. Við verðum hjá mömmu fram til 1 des því að húsið okkar losnar ekki fyrr en þá. Bjarni er ekki hræddur um að finna sér eitthvað að gera en ég verð áfram að vinna hjá Kristjáni. Það verður að vísu ekki 100 % vinna svo að ég kem til með að hafa nægan tíma til að hjálpa mömmu að sortera og taka geymsluna í gegn hjá henni og ég tala nú ekki um að kíkja í kaffi og fá fólk í kaffi. En við erum allveg ofsalega ánægð og sátt með þessa ákvörðun og komum heim með ótrúlega lífsreynslu af því að búa hérna og breytt viðhorf til lífsins. Ég er búin að vera að reyna að smita Hödda af tilhlökkun yfir því að við séum að flytja aftur heim, en það var ekki fyrr en ég fór að tala um það við hann að þegar við komum til Flateyrar þá geti hann nú bara farið út að leika sér þegar hann vildi. Ég held hreinlega að hann muni ekki eftir frjálsræðinu, því að það tók hann smá stund að melta þetta og svo sagði hann "ha má ég bara fara út úr garðinum og hvert sem ég vil" Er byrjuð að telja niður..... Kv, Vigga

» 10 hafa sagt sína skoðun

01.06.2006 14:11:38 / vigga

Það kom að því.....

Nei það er ekki búið að pakka græjunni, en netsambandið er búið að vera svo leiðinlegt heima og ég hef bara hreinlega ekki getað gefið mér tíma til að blogga í vinnunni það er búið að vera svo mikið að gera. En allavegana þá er loksins komin niðurstaða í allt þetta ferli sem er búið að standa í mánuð og lausnin er sú að við erum á leiðinni heim alkominn. Komum 10 júlí (sorry Maja og Júlía það breyttist um 3 daga.). En núna verð ég að hlaupa heim. Reyni betur að segja frá þessu öllu á morgun eða í kvöld ef að netið er virkt heima. Kær kv,, Vigga

» 8 hafa sagt sína skoðun

17.05.2006 06:16:26 / vigga

Til hamingju með afmælið !!!!

Jæja komið að því. Er búin að upplifa síðustu viku eins og fyrir 17 árum, í þeirri viku lá ég á meðgöngudeildinni rúmföst og var að hjálpa Kristjáni að afstemma bókhaldið fyrir bakaríið hjá Helgu og Hirti. Það voru mín fyrstu kynni af bókhaldi. Og svo loksins aðfaranótt 17 maí kom lítið stúlka, sem í dag er orðin stór stúlka sem sagt 17 ára. Til hamingju með daginn ástin mín og ég vona að hann verði þér góður. Sendi hér með hugarpóst og í honum er heitt kakó og ristað brauð með osti. (því að þú er sofandi þegar ég skrifa þetta og þá kemur það ferskt til þín þegar þú lest þetta) Og svo auðvitað kórinn líka. En pakkinn verður því miður að bíða þangað til við komum heim sumar. En annars allt gott af okkur að frétta, Höddi er að fara taka þátt í sundmóti í skólanum á morgun og það er mikill keppnisandi hjá honum og svo er alllt að gerast........ kem að því því næstu viku...... Kærar kveðjur heim !!!! Vigga

» 12 hafa sagt sína skoðun

11.05.2006 06:15:56 / vigga

Jæja.....

Takk fyrir aðstoðina stelpur með hana Júlíu á meðan mamma verður í RVK. Heyrði aðeins í Maju í gær og henni er búið að ganga ágætlega í sínum fyrstu menntaskóla vorprófum. Hún klárar núna 18 maí og ætlar þá að fara vestur og vera þar í sumar. Í dag eru 17 ár síðan að þessi elska átti að fæðast, enn hún lét aðeins bíða eftir sér, en þegar ég vaknaði í morgun þá var hugurinn staddur fyrir 17 árum og þegar ég hugsa 17 ár þá finnst mér það nú ekki hafa verið lengi að líða, en samt það gerir mig pínu gamla. En já loksins Maja mín þá er að koma að þessum stóra áfanga hjá þér, sem að þú hefur nú ítrekað verið að minna mann á undanfarin 3 ár. Þ.e.a.s. "bílpróf" Leiðinlegt að geta ekki verið hjá þér á þessum tímamótum bæði gagnvart því að klára fyrsta árið í menntaskólanum og ég tala nú ekki um bílprófið. En þú sækir okkur bara á flugvöllinn hvort sem það verður Keflavík eða Ísafjörður. Gott að hafa að einhverju að stefna að !!!! Þangað til næst. Vigga

» 7 hafa sagt sína skoðun

06.05.2006 18:33:20 / vigga

Erum á lífi...

Æji það er ekki alveg að ganga hjá mér þessa dagana að skrifa blogg. Hér er bara sama rútínan og ekkert þess fyrir utan. Netið búið að vera leiðinlegt hérna heima og svo er enn í gangi þetta rafmagnsleysi annan hvern dag. Það er nú að vísu farið að rigna töluvert en það ganga sögusagnir um að þetta rafmagnsleysi eigi að breytast núna í júní og að þá eigi að verða rafmagnslaust í 3 daga í röð. Þetta eru nú bara sögusagnir sem að ég vona svo innilega að séu ekki réttar. Annars er mikið búið að ganga á í vinnunni og margar stórar ákvarðanir í gangi...... Læt þetta duga í bili.... þangað til næst. Vigga

» 6 hafa sagt sína skoðun

29.04.2006 12:07:51 / vigga

Skrítinn laugardagur !!

Já verð að segja það að núna finnst mér þetta allt vera rosalega skrítið að hafa ekki Júlíu hérna hjá okkur. Bjarni fór út á vatn snemma í morgun með Kristjáni og fleiri strákum að veiða og leika sér. Kristján Conway gisti hjá okkur í gær og þeir Höddi eru bara búnir að vera að leika sér, svo að það þarf enginn á mér að halda. Er búin að rölta um húsið og reyna að finna mér eitthvað að gera, get ekki einu sinni tekið til því það er ekkert skítugt. Ekkert til að setja í þvottavélina og ekkert til að strauja. Mikið rosalega erum við með góða þjónustustúlku. Fór þá að taka til í fataskápunum hjá okkur og taka frá föt sem við erum hætt að nota, setti í stórann poka og gaf Jamillu það. Hún varð rosalega ánægð þannig að ég gat loksins gert eitthvað fyrir einhvern annan í dag.

Kveðjur heim.

Vigga


» 8 hafa sagt sína skoðun

27.04.2006 14:49:05 / vigga

3 í kotinu....

Já mikið rétt, alltaf að blogga í huganum. Það leiðinlega við það það festist ekki inni á síðunni. Annars er bara búið að vera rosalega rólegt síðan að stelpurnar fóru. Rólegt og ekki rólegt, það er rosalega rólegt heima en mikið að gera í vinnunni. Það er ferlega skrítið að vera bara 3. Herði finnst þetta bara fínt, nú fær hann líka alla athygglina og þó að það séu nú bara rétt liðnir 5 dagar þá er hann sko allveg búin að læra inn á okkur. Hann er rosalega stoltur af sjálfum sér þessa dagana því að núna kemur hann heim eftir skóla með skólabílnum. Vill helst fá að fara í skólann líka með rútunni líka en skólinn er  á leiðinni í vinnuna hjá mér svo að það kemur ekki til greina. Búin að heyra nokkrum sinnum í Júlíu og henni líður bara vel. Finnst gott og gaman að vera komin til Íslands aftur. Maja er að byrja í vorprófunum í MR og er svona ágætlega stressuð fyrir þau. Hún ætlar svo að fara vestur eftir skólann og vera þar í sumar og finna sér einhverja vinnu.  Vona að það gangi upp hjá henni.

Justin og Judith eignuðum strák í morgun, mánuði fyrir tímann. (Fyrir þau sem þekkja þau) Bjarni fór að skoða hann og hann er pínulítill, var ekki nema rétt rúm 2 kg, en sprækur og Judith er komin með hann heim. Ætla að kíka á þau á morgun. 

Kærar kveðjur heim og allir biðja að heilsa.

Vigga


» 2 hafa sagt sína skoðun

21.04.2006 14:21:58 / vigga

Gleðilegt sumar !!!!

Gleðilegt sumar !! Jæja þá eru þær eru lagðar af stað heim. Vöknuðum kl 6,30 og þá var grenjandi rignig, þær komu í rigningu og fóru í rigningu. Bjarni fór með þeim út á flugvöll. Það get ég ekki gert. Það er allt í lagi að fara að taka á móti fólki en ég get ekki lagt það á mig að fara með út á flugvöll. Mikið betra að kveðja bara heima í hlaði. En það var rosalega gaman að hafa þær stöllur og ég vona að þeim hafi líka fundist þetta skemmtilegt. Þær ættu núna að vera að lenda í London svo að ég bíð spennt eftir símhringingu. Júlía er rosalega spennt yfir þessu öllu saman og henni hlakkar allveg rosalega mikið til að komast vestur. En mikið rosalega eigum við nú eftir að sakna hennar. Höddi kom til mín í morgun og sagði sprækur. “Mamma núna ert þú bara lítil” ha sagði ég og skildi hann ekki allveg. “Já núna eru tveir strákar en bara ein stelpa” Það er þá í fyrsta skipti sem að kynhlutföllin eru mér óhagstæð.

Kv, Vigga

Image hosting by TinyPic


» 10 hafa sagt sína skoðun

19.04.2006 16:13:03 / vigga

Páskahelgin

Á páskadag var heljarinnar veisla hjá Kristjáni bróður. Þar voru saman komnir lang flestir Íslendingarnir og uppáhalds vinir okkar hér. Veislan var frábær, krakkarnir léku sér langt fram á kvöld í sundlauginni og síðan í leikjum í garðinum. Við fórum tiltölulega snemma heim enda var ferðinni heitið í dýragarðinn og í siglingarklúbbinn snemma á annan í páskum. Það var vel heppnuð ferð og allir höfðu mjög gaman af. Á þriðjudagsmorgun fórum við Strúlla svo á Vínarmarkaðinn og á annan minni handverksmarkað. Strúlla var agndofa á hamaganginum og sérstaklega á því að þar eru vörur endurseldar sem eru gefnar af Evrópubúum. Við kíktum líka á minni handverksmarkað. Eftir hádegið fór svo Strúlla með Bjarna út í Ssese eyjur í Kalangala héraði en þangað er um klukkutíma sigling. Hún kom heim í dag alsæl með ferðina.

kv.

Vigga

Image hosting by TinyPic

Image hosting by TinyPic


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8